Færsluflokkur: Ferðalög

Barcelona, Barcelona og meira Barcelona...............jabb, ég er á leiðinni þangað....

Hum er svona langt síðan ég bloggaði síðast.Blush

 Jæja það er af mér og mínum það að frétta að nú er mín að fara til Barcelona á sunnudaginn.Tounge

Nóg að gera. Fara á bæjarskrifstofurnar í heimsókn, skoða Gaudi safnið, farið á vínekru og spennandi verksmiðjur og byggingarframkvæmdir skoðaðar.

Jólin verða ofarlega í huga með jólagjafir í vinnslu.

Spennó, Spennó og meira spennó. Fyrir föndurfíkilinn mig þá er A4 (áður Oddi) að opna verslun hér á Ísafirði á morgun. Það fer hrollur niður hryggjasúluna á mér að spenningi. Helvíti verða þetta dýr jól þetta árið. Heiti mér því á hverju ári að minnka útgjöldin en ég fell alltaf fyrir freistingunum.

TIL HVERS ERU ÞÆR ANNARS EN AÐ FALLA FYRIR ÞEIM.

Það verður fallið fyrir nokkrum freistingum í Barcelona. Grin

Ola, Bella PIG eða þannig. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband