11.11.2008 | 22:35
.....og geðveikur nágranni með heimabíó....6 á richter hér...
Já, hvað á að gera við nágranna sem er nýbúinn að fá sér leikjatölvu og heimabíó. Það eru þvílík lætin í stofunni hjá mér. Það glymur í gólfinu hjá mér og glerið í hillunum skelfur. Lögreglustjórinn á svæðinu hefur verið vitni af látunum. Tillitsleysið er þvílíkt. Ég er búin að kvarta undan hávaða einu sinni og ég fékk að heyra það á móti að það heyrðist stundum í mér. Ok. Ég viðurkenni það að hafa keypt Indíana Jones Lego fyrir PS2. Ein byssan í leiknum var örlítið kraftmikil en ég efast um að lætin í leiknum hjá mér komist í hálfkvist við það sem ég er að upplifa hér núna. Já og svo tölum við svolítið hátt hér á heimilinu.
En þá hefst lesturinn. Í ágúst sprakk rör hjá þeim fyrir ofan mig. Það var rigning í eldhúsinu hjá mér í viku. Sex dallar um allt eldhús og það angaði af stíflueyði í mánuð. Loftið er ónýtt og mála þarf veggina upp á nýtt. Líklega er raki í gips veggjunum. Ok, ef tryggingarnar borga fyrir nánast nýtt eldhús fyrir jól þá segi ég ekki neitt.
Ég hef vaknað upp í miðri viku og tónlist á fullum styrk uppi. Það er partý. Enda er hér um að ræða gleðifólk og þá á ég ekki við það að þau reyti af sér brandarana.
Liðið í kjallaranum reykir og Stefanía og stofan anga.
Ef ég get ekki sofið eða verið í stofunni há mér vegna sígarettu óduns þá segi ég nei. Það eru takmörk í þessum heimi.
Ekki verý happý pig þessa dagana... svoooo þreytturrrrzzzzzzzz
Athugasemdir
Uss, er unglingurinn ekki bara byrjaður að reykja?
Þórhildur frænka (IP-tala skráð) 19.11.2008 kl. 11:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.