Það er þessi tími ársins sem er að renna í garð. Með kvefinu, kuldanum og slyddunni koma allar afmælisveislurnar.

Jæja þá er komið að því. Fyrsta afmælið á morgun.

Kvöldið er búið að vera ansi strembið. Ekkert mál að gera blessaða kökuna sem fer í leikskólann, 

5 ára afmælið en að hafa litlu skrítlurnar hangandi yfir sér getur reynt á þolinmæðina.

Bratz er það þetta árið.

 

Í fyrra var það Dóra könnuður.

Spurning hvernig köku Sunneva Sól vill fá á sínum afmælisdegi. Sem betur fer er Stefanía Kristín 17 ára á miðvikudaginn og komin yfir kökualdurinn.

 

 

 

Innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn þinn á morgun Hildur Högna og Stefanía Kristín með þinn daginn þar á eftir og loks Sunneva Sól þann 9 okt. 

 

Kökukrems- og súkkulaðikveðjur frá Pretty Pig.


Ég er komin heim í heiðardalinn, ég er komin heim með slitna skó.... komin heim til að .......

Well, well

Komin heim eftir vikudvöl í henni Reykjavík. Alltaf gott að komast í Borgina, og alltaf jafn gott að komast heim.

Það var nú minna verslað en ég gat átt von á. Það er þetta með sálfræðina. Ég er farin að horfa á hlutina sem mig langar í og spyr þá: "Hef ég þörf fyrir þig?" Ef hinn sami hlutur svarar til baka þá er ekki séns að hann sé keyptur. Ef þessi sami hlutur sendir mér hugskeyti innan mínútu þá er hugsanlegt að hann sé keyptur.

Annars  er ég með shopaholic syndrome bara vægt. Systir mín er með big time shopaholic syndrome. Ég gæti sagt skemmtilegar sögur af henni en ég bíð með þær þar til að ævisagan kemur út.

Vá .... geysp ég er alltaf syfjuð.

Nú er bara að lesa bloggið hennar Þórhildar og fara síðan að leggja sig.

 

Góða nótt allir mínir vinir þarna úti.

Með kveðju frá Pretty Pig. 


.....................

HILDUR HÖGNA, SUNNEVA SÓL, STEFANÍA KRISTÍN

ANNA GUÐRÚN, EGGERT MAGNÚS INGÓLFSSON

Jæja þá er komin fyrsta bloggfærsla Hildar Högnu, 5 ára. 

Eins og þið sjáið þá  þá þarf ég ekkert að blogga framar, hún  tekur við af mér eftir mánuð eða svo.

 

geysp........góða nótt Pretty Pig. 


Enn ein skelfingin í lífi mínu.........nei ekki þú Eggert.

Fór til Bolungarvíkur í dag. TVISVAR.

Það var sko nóg af grjóthruni í Hólshreppi í dag.

storgrytiSveigði framhjá amk. sex grjóthnullungum í fjöltonna stærð.

Kannski ekki í þessari stærð sem er á myndinni , en svona helmingi minni og á miðjum veginum.

Þessi var talinn vera um 5 tonn og féll á veginn um Óshlíðina 10. ágúst sl.

Annars er allt gott að frétta héðan frá Ísafirði. Við höfum okkar eigið Bold and the Beautiful. Þannig að ég fer að segja Stöð 2 upp. 

Annars er ég á leið til Reykjavíkur í næstu viku til að fara á fund byggingarfulltrúa. Þið megið trúa því að þar fer flottur karlaklúbbur með tvær dömur innanborðs.

Brúðkaup í framhaldinu og gaman gaman. Nei ekki mitt. 

auf veeder sehen, eða þannig.

Pretty Pig kveður í bili. 

 

 

 


Grái fiðringurinn........bleika fullnæ........Ég neita hreinlega að fá litlausan fiðring þegar ég eldist. Er ekki til flottari litur á þessum skjálfta.

Vá ég fór í ljósabekk í kvöld. Hef ekki farið í þannig í að ég held í 10 ár.

Það fyndna var að þegar afgreiðslustúlkan á ljósastofunni fletti mér upp þá var ég sögð með lögheimili í Eyjabakkanum. Ég held að ég hafi verið með lögheimili þar síðast 1997.

Því leið mér eins og ég væri stokkin aftur í tíma um þessi 10 ár. My and Michael J. Fox....wow...

Ég lít nú svo helv... vel út að ég gæti alveg verið 10 árum yngri en ég er.

En takið eftir því að: " Þú ert aldrei eldri en það sem þér finnst þú vera.Kissing

Ég horfði á Madonnu á skjá einum í gær. Sú er ekki að láta 50 árin halda aftur af sér. Svona á að fara að því. Því hef ég ákveðið að fá mér árskort í Stúdíó Dan og komast í gott form.

Ég segi því við þig elsku litla Prettý PIG gangi þér vel, já takk.

 

ADÍÓS FROM VERÝ PRETTÝ, FIRM, PIG. 


Uppskriftin af mér......Kvenleg fegurð.

Tveir stærðfræðiprófessorar við Cambridge-háskóla hafa fundið einfalda stærðfræðiformúlu til að reikna út kvenlega fegurð.

Það er hlutfallið á milli ummáls mittisins og mjaðmanna sem öllu skiptir um hversu aðlaðandi konur eru og göngulag þeirra kynþokkafullt. Akkúrat lýsingin á mér.

Konur sem hafa mittis-mjaðmahlutfallið 0,7 - það er að segja þegar mittisummálið er 70% af ummáli mjaðmanna - munu vera taldar mesta augnayndið. Your's truely....

Ef þið trúið mér ekki skoðið þá fréttina sjálf http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1287589

Ég er með stuðulinn 0,75. PÚFF

Brad Pitt gæti farið að banka uppá. Hvað á ég að segja við hann????? Hjálp, Hjálp....Ég er að ná mér hér, næ örugglega að segja eitthvað gáfað......

Nú er það megrun til að ná mittismálinu niður. Ég virðist hafa bætt á mig þar á undanförnum árum.

Sjáumst sexý

SEXY PIG is checking out with THE PITT.

Ég sagði við hana, þegar hún kom til mín uppspennt eftir helgina: "Ef þú kemur svona fram við fólk um þá.....". Hún svaraði ekki, heldur rauk á dyr.

Sunneva Sól já, það er alltaf spurningin um helgarnar.

Hér í sveitinni notar maður góða LoLveðrið þegar það gefst.

Á föstudag var farið á aðalfund Mýrarboltafélagsins.  Svo sem allt í lagi.

Laugardagurinn "my man". Fjölskyldan fór á 100 ára afmælishóf til heiðurs Bændasamtökum Vestfjarða. Gleðin var haldin á Núpi.

Á staðnum var lítill húsdýragarður sem börnin höfðu gaman af, vöfflur sem allir höfðu gaman af og hestar frá hestamannafélaginu Stormi á Þingeyri, Hildur Högna

sem yngsta kynslóðin elskaði. Litlu gríslingarnir fóru tvisvar á  bak.

Eins og myndirnar sýna þá er mikið gaman og mikið fjör.

Eftir búnaðarsýninguna var keyrt á Ingjaldssand. Áhugaverður staður.

Á sunnudeginum voru ber tínd í hundraða tali í Hestfirði. Æðislegur staður. Veðrið gat ekki verið betra.

Hér er smá ábending til þeirra sem eru að fara að tína ber eða að fara að njóta náttúrunnar, "Ekki vera með lykt-sterk efni í hárinu eins og froðu, gel eða annað. Flugurnar eru vitlausarInLove í lyktina."  Það er ávísun á að fá ekki frið.Crying

Þegar komið var heim úr vinnu í kvöld var sultað úr öllum herlegheitunum.  Ég taldi ekki mikið yrði úrberjunum sem tínd voru.  En annað kom á daginn. Ég stóð í ísskápnum í kvöld til að losa úr krukkum sem komnar voru á dagsetningu eða lítið var eftir í. 

Uppskeran var 1,2 ltr af krækiberjahlaupi. Geðveikt gott. (sett í 4 krukkur)

2 ltr af bláberja og rifs sultu. Verður smökkuð á morgun.(sett í 6 krukkur þar af ein stór)

Nú er orkan tæmd eftir helgina og kvöldið í kvöld. Fótbolti á morgun og síðan hvíld.

 Með kveðju frá Very Pretty PIG.Kissing


Svo ég sagði við vinkonu mína: "Ef þú hættir þessu ekki þá verður þú eins og ......." og þar við sat.

Nei svona í alvöru talað, þá er ég með kaffið í vinnunni á morgun. Ég er búin að bíða spennt síðan á sl. föstudag. Ég var svo spennt að ég gleymdi að fara í Bónus og kaupa öll jarðaberin og bláberin sem ég ætlaði að nota í kökuna. Ég ætla að vera með alvöru kaloríusprengju.Sick

Mér datt í hug að redda mér með bláberin með því að hlaupa upp í einhverja brekkuna hér og tíma þau sjálf, enda eru þau örugglega betri en þessi í búðunum. Síðan að stelast í einhvern garð og athuga hvort einhver væri með jarðaber. Sýslumaðurinn er að vísu með stóran jarðaberjagarð, en ég át síðasta berið hennar í dag.Blush

Hljóp í Samkaup. Þvílík vonbrigði með berjadeildina. Berin þar voru meira og minna mygluð og slöpp. Minntu mig á allt sem er framan á  mér.

Þannig að það verður leikið af fingrum fram:

Í kökuna fara 2 marenge botnar. Á milli þeirra þeyttur rjómi blandaður með þykkri karamellusósu (hafa hana kalda), berjum og ávöxtum sem ég fann í ísskápnum, súkkulaðispænir. Ofan á kökuna kemur þeyttur rjómi, ávextir og ber og fullt af þykkri súkkulaðisósu. Einnig er klikkað að bæta í þetta allt súkkulaðirúsínum, döðlum og salthnetum. Ofan á toppinn koma síðan nokkur blæjuber til skreytinga.  Það geta allir gert þetta sykursjokk. Það þarf ekki einu sinni mæliskeiðar eða bakarofn. Getur ekki klikkað.

Ein kaka er vikuskammtur af glúkósa fyrir heilann að starfa rétt.W00t Við ræðum engan vegin kaloríufjöldann hér. Ég vil ekki gráta þegar ég fæ mér bita af henni. Crying

Verði ykkur að góðu og góða helgi.Wizard

Yours truely very much Pretty Pig. 

P.s. Hvers vegna kallar hún sig Pretty Pig? 


Ný komin af faðmlaganámskeiði....

Skrapp til Bolungarvíkur í kvöld til að taka þátt í faðmlaganámskeiði.

Æfing fyrir námskeið.Það eru ýmsar kenningar um faðmlög. T.d. að vísindarannsóknir styðja þá kenningu að örvun með snertingu er algjör undirstaða líkamlegrar sem og andlegrar vellíðunar. Snerting er notuð til að draga úr verkjum, þunglyndi og kvíða, til að byggja upp lífsvilja sjúklinga, við að hjálpa fyrirburum sem hafa verið sviptir snertingu í hitakössum að vaxa og þroskast.

Rannsóknir hafa líka sýnt að snerting getur gert okkur sáttari við okkur sjálf og kringumstæður okkar. Haft jákvæð áhrif á málþroska og greindarvísitölu barna.

Til eru margar tegundir snertinga og mælt er með faðmlögum sem sérstakri og mjög árangursríkri aðferð til að auka vellíðan og heilbrigði.

 Við verðum náttúrulega að hafa ástæður fyrir faðmlögunum. T.d. eru faðmlög góður megrunarkúr. Faðmlög minnka matarlyst, við borðum minna þegar við erum andlega nærð af faðmlögum enda eru hendur okkar uppteknar að halda utan um aðrar knúsverur.

Faðmlög slaka á spennu, hægja á öldrun og auka sjálfstraust, gera góðan dag betri og svona mætti lengi telja.

Hæfniskröfur eru gerða til þeirra sem vilja verða faðmlagafræðingar sem og skjólstæðinga þeirra, það er bara að vera. Faðmlagafræðingur dæmir aldrei né ásakar. 

Faðmlög eru fyrir alla.

Siðfræði og hegðunarreglur faðmlagafræðinga eru fjórar:

1)  Þar sem faðmlag af þessu tagi er aldrei kynferðislegt, faðmaðu samkvæmt því.

2) Fullvissaðu þig um það að þú hafir leyfi áður en þú faðmar.

3) Þér ber einnig að biðja um leyfi alltaf þegar þú þarft á faðmlagi að halda. 

4) Þú ert ábyrgur fyrir að tjá þarfir þínar og hvernig þú vilt fá þeim fullnægt.

 Hér eru nokkur dæmi um faðmlög: Bangsafaðmlag, Þríhyrningsfaðmlag, Kinn við kinn, Samlokufaðmlagið, Hrifsa-þrýsta-hlaupafaðmlagið, Hópfaðmlag, Hlið við hlið faðmlagið, Aftur og fram faðmlagið, Hjartastöðvarfaðmlagið og að lokum Klæðskerafaðmlagið.

Hvernig við föðmumst fer eftir umhverfinu sem við erum í, hvenær tíma dags þörf til faðmlags kemur yfir mann. Hægt er að gefa frá sér hljóð eftir faðmlag eins og vááá eða æði eða þetta er yndislegt eða einfaldlega að njóta faðmlagsins með augnabliks þögn.

Svo eru öll þessu flóknu tæknilegu smáatriði sem hafa þarf í huga eins og að nota þín innri augu eða Zen faðmlög og þessi aukasnerting.

En þegar allt kemur til alls þá er málið að faðma oft og faðma innilega.

Með kveðju frá Huggy Pretty Pig. 


Er að komast í gírinn...mýrarbolti og.....

Vá dj....l er erfitt að komast úr sumarfríinu. Nenni ekki að opna tölvuna þegar ég kem heim á kvöldin, er ekki alveg í sambandi í vinnunni og svona mætti áfram telja. En ég geri mitt besta.

Eftir fyrsta leikinn.Mýrarboltinn. Tókst að vera með í þremur leikjum. Fyrsti leikurinn fór alveg með mig. Spilaði í heilar 10 mínútur. Fyrir þá sem ekki þekkja til, þá eru tvær mínútur hámark sem hægt er að spila í einu. Síðan góð hvíld. Og aftur inná.....

Hvers vegna? Jú í mýrarboltanum er spilað í drullusvaði sem nær frá ökklum og upp á miðja kálfa. Þetta snýst ekki um það hversu góður þú ert í fótbolta, heldur hvort þú náir skónum með upp úr drullunni. Enda er gott límband og lítill klæðnaður frá hné og niður galdurinn í þessum leik. 

Eins og sjá má hér til hliðar er ég algjör byrjandi í þessari grein íþróttar.Shocking

En þetta er klikkaðslega gaman. 

Ég mæli með linknum hér að neðan:

http://www.bb.is/Ljosmyndavefur/Svipmyndir/MyndaYfirlit/~/itemid/a0e9e912-21a2-4c6b-9f8c-7475356cd0e8

Fyrir áhugasama þá eru þetta svipmyndir frá Mýrarboltanum 2007. Ykkur til mikillar gleði þá er ég ekki á þessum myndum enda ekkert skemmtilegt myndefni. EN ég vona að þið skemmtið ykkur og verðið með að ári.

 

með kveðju frá Dirty PIG. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband