Löng þögn.

Ég vil biðja dygga aðdáendur mína afsökunar á því að hafa ekki bloggað sl mánuð. Ég hef verið í sumarfríi og ákvað að taka mér sumarfrí frá þessum  ritstörfum mínum.

(ok þetta var bara leti)

Annars er fríið búið að vera fínt. Hálskirtlataka, húsdýragarðurinn, IKEA, Smáralindin og að sjálfsögðu Kringlan. Ég á frábær börn, þau elska að fara í Kringluna, ekki að versla, nei í ævintýralandið. Besta barnapössun sem ég hef fengið um dagana. Þó að verðið sé í hærri kantinum þá slaga leikskólagjöld hér á Ísafirði hátt upp í verðið í ævintýralandinu. 

Ég eyddi ekki öllu fríinu í Reykjavík. Ég fór á Tálknafjarðardaga um síðustu helgi. Ágætis ferðalag. Bíldudalur er flottur bær. Stefni að því í framtíðinni að kaupa mér sumarhús þar. Vegamót er flott verslun. 

að lokum þið eruð yndisleg, Pretty Pig. 

 


Alveg sönn lítil saga. Ævintýra ferðalag litlu blöðrunar.

Það var að morgni 17. júní sem litla Bratz blaðran varð til í einu sjoppunni á Ísafirði.

Lítil ljóshærð stelpa kemur inn í sjoppuna um hádegisbil. Bendir upp í loftið og segir við Mömmu sína: "Ég vil þessa blöðru."  Afgreiðslustúlkan réttir Litlu stúlkunni blöðruna og allir fara ánægðir út í 17. júní hátíðarhöldin á Ísafirði.

Copy of 2007-06-17-12Eins og sést hér á myndinni, þá er blaðran góða í öruggum höndum Stóru systur.

En það var sjö dögum seinna sem þessi ákveðna blaðra, Bratz, ákvað að leggja upp í leiðangur. Hvert ferðinni væri heitið, var óákveðið.

Litla stúlkan, eigandi Bratz blöðrunnar tekur hana með sér út á svalir í góða veðrið er klukkuna vantar 15 mínútur yfir tvö að staðartíma. Þar leika þær sér saman í stutta stund uns litla stúlkan stendur upp og labbar inn. Um leið og litla stúlkan er komin inn slítur Bratz blaðran sig lausa og svífur af stað upp í loftið. Loksins var hún frjáls.

Í sömu andránni lítur móðir litlu stúlkunnar, upp í loftið og sér Bratz blöðruna svífa burt. Vitandi, að sorg litlu stúlkunnar yrði mikil ef blaðran næðist ekki aftur. Móðirin sprettur því og hleypur á eftir blöðrunni. En um seinan. Blaðran svífur ánægð burt og út á sjó.

 Þegar litla stúlkan áttar sig á því hvað gerst hafði verður sorgin mikil. Stór tár renna niður kinnar hennar uns hún grætur sig í svefn. Öðru hverju lítur móðir litlu stúlkunnar út um gluggann og sér blöðruna alltaf lengra og lengra út á sjónum uns hún hverfur sjónum hennar. Það er engu líkara en Bratz blaðran sé á leið inn í Djúp burt frá öllu og öllum.

Þegar tekur að kvölda, fer litla stúlkan og fjölskylda hennar inn í eldhús til að borða kvöldmat. Allt i einu sést til Bratz blöðrunnar, hvar hún fer hratt yfir á leið sinni í átt að landi. Litla stúlkan, Stóra systir og Mamman spretta upp frá borðinu og út í bíl. Bratz blöðrunni skyldi bjargað úr sjávarháska. Keyrt er sem leið liggur eftir strandlínunni og ekki stoppað fyrr en hugsanleg lendingarstaður Bratz blöðrunnar er fundinn. Það tekur ekki nema nokkrar mínútur fyrir Mömmuna að klifra niður snarbrattann klettavegginn og niður að sjó. Bratz blaðran er komin í öruggar hendur.  Sæl og ánægð að vera komin heim aftur. Ekki nema örfáar rispur hafa komið á fætur hennar, en hvað er það fyrir svona mikið ævintýri sem Bratz blaðran hefur upplifað í þær fimm2007-06-24-3 klukkustundir sem hún var að heiman. 

Hér má sjá ánægða Litla stelpu og Stóru systur hennar bíða eftir Bratz blöðrunni sem  stefnir hraðbyr að landi. Sjá má lítinn blett á sjónum fyrir aftan þær.

 

 

 

 

 

Endurheimt úr sjávarháska. Hér má sjá hvar Stóra systir, Litla stúlkan og Bratz blaðran labba ánægðar áleiðis heim á leið.

Nú hefur Bratz blaðran jafnað sig á ferðalaginu og svífur nú stolt og þrýstin í eldhúsi litlu fjölskyldunnar.

Héðan í frá ætlar Litla stúlkan að passa upp á Bratz blöðruna sína.

 

 

Þetta er sönn saga frá Vestfjörðum.

 Hafi einhverjar upplýsingar ekki komist til skila í þessari sögu, vinsamlega sendið inn athugasemd og öllum verður svarað fljótt og örugglega, til að óþarfa óvissa ríki ekki á meðal lesenda.

 Kveðja frá Mömmu Pretty Pig.

 

 

 


Ekki er öll vitleysan eins.

En svona hlutir gerast líka hér á litla Íslandi.  

Ég þekki til tveggja systra sem eru fæddar hér og uppaldar, komnar yfir fimmtugt í dag.

Þær eiga íslenska móður, bandarískan föður og hafa bandarískt vegabréf.

Fyrir um ári síðan voru þær á leið heim til Íslands úr utanlandsferð þegar þær eru stoppaðar í vegabréfseftirliti og meinað um inngöngu í landið.  Það tók nokkra klukkutíma fyrir þær að komast inn í landið aftur eftir hringingar í forstjóra útlendinastofnunar og fleiri.

Síðan þá hefur bara verið vandamál að eiga við kerfið til að fá íslenskt vegabréf og allt sem því fylgir.

Eftir tugi ferða erlendis, enda miklar ferðakonur, allt í einu er þeim meinaður inngangur í landið.

Ef það var vandamála að þær væru með bandarískt vegabréf, hvers vegna var ekki búið að tilkynna þeim það.  Að því sem mér skilst þá er það nýlega til komið, að hægt sé að vera með  tvöfaldan ríkisborgararétt.

 


mbl.is Átti á hættu á að verða rekin úr landi eftir 78 ára dvöl í Skotlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stutt í dag.

Komin upp í rúm fyrir framan sjónvarpið, með tölvuna í fanginu og bók á hægri hönd. Rauðvín í glasi á borðinu og reyni að gleypa allt í einu.

Hef ekki tíma til að blogga núna, dottin í rauðvínsglasið, það skásta í stöðunni.

Pretty Pig is checking out.  Grin

 

P.s. það er einhver kona búin að hringja tvisvar í heimasímann minn  í kvöld og segir bara "......rangt númer....." og skellir á.  Var að tékka á númerinu. Hjálp.....Endurhæfingardeild, Landsspítala Háskólasjúkrahús, sambýlisdeild 20, Kópavogi.Shocking


Dagur 1. Kæra amma......

Dagurinn byrjaði kl 06.00 þegar litla ljóskan vaknaði til að fara að pissa. Ekki mikið mál að hjálpa henni í því. Það jákvæða var að hún pissaði ekki í rúmið mitt. (hefur að vísu ekki gert það síðan hún hætti með bleyju 18 mán)

Tókst nú samt að gubba í rúmið, en það er allt í lagi ég þurfti hvort eð er að skipta um rúmföt.  Þar sem ég var heima í dag, með sjúklinginn, þá var herbergið ryksugað og allt burstað úti í góða veðrinu.

Á meðan að loftskipti fóru fram í íbúðinni þá horfðum við mæðgur á Sound of Music. Snilld. Ég fer alltaf að syngja með. Óperur ef því er að skipta. Ég ætla að taka nunnuna Maríu til fyrirmyndar. Hún er gjörsamlega út úr heiminum þegar veðrið er gott. Gengur á fjöll og syngur.  Svona "Sound of Music Syndrom" la la lalala. Hún náði líka í stegg með öllu í restina. Ef þú áttar þig ekki á því, þá er það ekki gæs með sósu og brúnuðum. 

Litla ljóskan gubbaði nokkrum sinnum fram eftir hádeginu en hætti um kl 13.08 í dag. Fínt að Þvo mikið  í góðu þvottavélinni minni. Mér var sagt frá því að því meira sem þvottavélin er notuð, því lengur endist hún.  Með þessu áframhaldi þarf ég ekki að kaupa mér vél næstu 20 árin. Þá verður búið að finna upp efni sem búið er að húða með gljáefni sem hrindir frá sér óhreinindum. Ekki fleiri þvottavélar.

Seinnipartinn var brunað á fund í Bolungarvík. Óvenju mörg mál á dagskrá og kraftaverkin gerast enn, klukkutími og 40 mín. YES.

Nú er legið í hreina og fína rúminu, með hreina loftinu í herberginu og börnin sofnuð. Æðislegt.

Ég gleymdi veðrinu. Logn, 15 °c og skýjað. Geggjuð blíða.

 

adíós allir. I am Pretty Pig. Thanke you for reading.


Samviskubit 101

Ég er farin að hafa mikið samviskubit yfir fáum bloggfærslum undanfarið.

Ég hef mikið verið að velta fyrir mér allri neikvæðninni í nánast öllu, fjölmiðlum, bloggfærslum, samræðum við annað fólk og eins og ég segi nánast í öllu. Ég velti þessu fyrir mér vegna þess að ég er ekkert betri sjálf.  Ég lofa alltaf sjálfri mér að hætta þessu, síðan einhvern vegin dettur maður í þessa leiðinlegu neikvæðni. Eitt sem slær mig svolítið er að það þarf alltaf að finna blóraböggul á öllum þeim leiðinlegu atvikum sem verða. Hvenær ætlar fólk að fara að taka ábyrgð á eigin gjörðum, lífi sínu og barna sinna?

Hér í þessu bæjarfélagi mínu er nóg af neikvæðni. Mikið af fólki að flytja í burtu, störf eru seld úr byggðarfélaginu og svona mætti telja. Ég er búin að búa hér og starfa í tvö ár. Og auðvitað var erfitt að koma úr Reykjavík (borin og barnfædd) í svona lítið samfélag.  Það tók sinn tíma að sætta sig við það að geta ekki keypt sér verkjatöflur eða jafnvel skrúfur á öllum tímum sólarhringsins eins og hægt er að gera í Reykjavík.

Það jákvæða við að búa á Ísafirði er:

Líflegt og skemmtilegt fólk. Búin að kynnast ógrynni af fólki á þessum tveimur árum. Frábær náttúra, fallegur bær og æðislegt veður það sem af er af sumri og í vor. Lítið samfélag, fullt af kjaftasögum. Stutt í allar áttir innan bæjarfélagsins. Ódýrara að búa í miðbænum hér en í úthverfunum, öfugt við Reykjavík. Snyrtivörur á sama verði og í Hagkaup. Og það best er, að snyrtivörum fylgir í 90% tilvika prufur. Alltaf fjölgar í flórunni af kaffihúsum. Sumarið er mjög líflegur og skemmtilegur tími, alveg feyki nóg að gera.

Það sem er erfitt að sætta sig við hér á Ísafirði er:

Glæpsamlega dýr leikskólagjöld, borga 360.000 kr meira hér á ári en í Reykjavík.  Mánuður í Reykjavík erum 20.000 kr en hér er ég að borga um 48.000 kr.  Hitt er að leiðin til Reykjavíkur er allt of löng. Hægt væri að stytta hana um 100 -150 km með göngum og brúm. Um leið færu fleiri að koma hingað. Bæði sem ferðamenn og sem nýir íbúar Ísafjarðarbæjar.

 

Niðurstaðan er þessi: Ég þarf leiðbeiningar á því hvernig ég get farið að tala meira jákvætt um hlutina og aðrir þurfa að fara eftir þessu sömu leiðbeiningum með mér.

 

Að lokum, það eru komnar æðislegar myndir af litlu börnunum mínum í Sólargöngunni í dag.

Með kveðju frá Pretty Pig.

 

P.s. Stefanía mín gangi þér vel í vinnunni þinni í sumar. Þú ert klár og æðisleg stelpa og getur allt sem þú vilt geta gert. 


Betra seint en .......

Vá langt frá síðasta bloggi. Mikið búið að ganga á og gerast síðustu daga.

Gifsplöturnar eru komnar upp í stelpnaherberginu og nú er að spartla og pússa. Þrjár umferðir, takk fyrir.

Já það var Buddah Bar í París. Fór með mömmu og Kristínu sumarið 2001. Frekar vinsæll staður meðal fína fólksins í París. Við inn að borða. Þokkalega vel verðlagt og rauðvínið sem drukkið var gerði sitt gagn. Þegar við vorum á leið út af staðnum, stoppuðum við í minjagripaversluninni. Keyptir voru 5 litlir 2 cm háir búddar í silfurlitaðri pyngju. Verðið 45 evrur. Það var ekki fyrr en heim var komið að við áttuðum okkur á að þær kostuðu 4500 kr íslenskar. Maturinn var góður en þarna létum við taka okkur í .............EKKI FARA Í MINJAGRIPAVERSLUNINA.

 

Heyrið þið, það var þetta með Robbie Williams, George Michael (kikna enn i hnjánum), Robert Downey jr., Robert Redford, Kevin Costner...of þreytt til að muna eftir fleirum.....

Hvað eiga þessir menn sameiginlegt? Ég myndi pissa í mig af spenningi ef ég myndi hitta þá á gangstéttinni á Ísafirði. Svolítið skrítinn smekkur á  mönnum, en "líkur sækir líkan heim" er einhversstaðar skrifað, má þá búast við einhverju öðru.

 

Skoðið nýjustu myndirnar. Upprennandi dansmeyjar....

adíós from Pretty Pig. 

 


Skemmtileg vitleysa - Taka Tvö.

Ég gleymdi að nefna lagið "Golden Brown" með The Stranglers í fyrri bloggfærslu.

 

2007-06-04-2

Það kom ósk frá aðdáanda að taka mynd af minni fögru brúnu hendi. Ég tek fram að ég á höndina til vinstri og minnsta ungfrúin á heimilinu þá hægri. Liturinn á minni hendi á að vera svipaður og  og á hinni. Liturinn hefur dofnað mikið. 

Í fyrsta lagi eru fimm dagar liðnir frá því að brúnkukremið var sett á.

Í öðru lagi þá er ég búin að nota grænsápu og vírbursta í þessa fimm daga og þrisvar á dag.

Í þriðja lagi vaskaði ég upp 60 kristalsglös "with my bare hands" á laugardagsmorguninn.

Það skásta í þessu öllu saman er að lófinn er kominn í eðlilegt horf.

Annars er kominn tími á næstu meðferð. Núna verða notaðir hanskar. 

Það kitlar pínulítið að vera með húðlit. Því liturinn er nokkuð jafn núna eftir fimm daga.

Hver þarf að fara til Spánar núna. PARÍS, Camp Elysees, La Basilique du Sacré-Coeur, La Place du Tertre, Musée du Louvre og allir hinir fínu staðirnir. Ég á eina góða sögu handa ykkur frá síðustu förr minni til Parísar. Hún tengist frægum stað Buddah Bar. 

Söguna fáið þið í næsta bloggi sem og hvað Robert Downey jr., Robbie Williams, George Michael og fleiri góðir eiga sameiginlegt.

góða nótt......

 

 

 

 


Skemmtileg vitleysa.

Hver kannast ekki við:

Brown Sugar með The Rolling Stones

Brown girl in the ring með Boney M

Black Magic Woman með Fleetwood Mac og seinna Santana

Woman in Black með Foreigner 

 

Einhvern vegin þá hef ég sönglað þessi lög í allan dag. Ég veit ekki hvers vegna, en kannski út af því að hendurnar á mér líta út eins og gamlar sveskjur.

Ég ætlaði að vera svo sniðug í gær að setja á mig brúnkukrem. Afleiðingin er kaffibrúnar hendur. Restin af skrokknum hefur temmilegan húðlit. En boy oh boy. Það kom fólk inn á skrifstofu til mín í dag. Ég veit ekki hvað það hefur haldið. A.m.k. hlógum við mikið af þessu í vinnunni í dag. Enda hvað get ég annað. Ég lét skipta út gömlum, ljótum, þreyttum og gráum fyllingum í tönnunum á mér í morgun. Tveir tímar í  stólnum hjá tannlækninum. Brosi hringinn núna.Grin Ég er ekki frá því að framtennurnar í mér séu örlítið hvítari og flottari. Tannlæknirinn sagði að þær yrðu fljótt í sama gamla litnum og áður.  Neibb bursta, bursta og aftur bursta og minnka kaffidrykkjuna. Ekkert litað gos, bara Kristall. Ógeðslega er gaman að vera með hvítar tennur. Markmiðið er að skipta út gömlu silfurfyllingunum fyrir hvítar á næstu tveimur árum. 

En núna langar mig í súkkulaði. Þori því ekki, hrædd um að bíta í fingurna á mér. Verð að bíða þar til brúnkukremið fer að dofna. 

Eins gott að það er bjart allan daginn núna annars liti ég út fyrir að vera handalaus í myrkrinu.

 

Nei nú er ég hætt að reyna að segja fleiri fimmaura brandara. Ég er ekki einu sinni fyndin.

Kveðja frá Pretty PIG 

 

 

 


............

Ég asnaðist til tannlæknis um daginn. STÓR fylling gaf sig.  Að láta gera við tönnina var ekkert vitlaust, en það sem ég gerði eftir það var alger þvæla. Ég pantaði mér annan tíma. Tönnin sem varð fyrir valinu að gera við að þessu sinni var lítið brot sem datt úr fyllingu. Minni en títuprjónshaus. Það var nú í lagi. En þegar ég benti tannlækninum á að draumur minn í mörg ár hafi verið að skipta út gamalli (var) hvítri fyllingu í framtönn. 

Þá kom romsan. "við tökum fyllinguna sem brotnaði, setjum hvíta í staðinn, skiptum út silfurfyllingu í tönn þar við hliðina á og síðan þessar gömlu í framtönnunum." Ég fer þá að verða þokkalega hvít í efri góm (tönnum).

Efri gómur vinstra megin, ásamt heila, tungu, nefi og fleiru verður dofinn frá kl 8.20 - 15.00 á næstkomandi fimmtudag. 

Hringingar eru vinsamlega afþakkaðar á þessum tíma sökum lömunar í tungu og skelfingar vegna aðgerðarinnar. 

Þeir sem vilja styðja mig  í baráttu minni er bent á reikning minn ..............framlög alltaf vel þegin. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband