Pælingar dagsins í dag.

Vá það hljóta að vera vonbrigði hér á Ísafirði í dag. Sinfonían átti að spila í gær og ekki í fyrsta sinn þá er tveimur flugvélum Flugfélags Íslands snúið við með alla hljóðfæraleikarana innanborðs. Fíni flygillinn og öll hin hljóðfærin tilbúin í íþróttahúsinu á Torfnesi. Ef einhver hefði látið mig vita, þá hefði ég nú getað hlaupið í skarðið. Enda fjölhæf með eindæmum.

Síðastliðna tvo mánuði hef ég tvisvar ætlað á leiksýningar sem, síðan var aflýst þar sem flugvélin með leikaraliðið gat ekki lent á Ísafirði. Sem betur fer þá er alltaf fundinn nýr dagur fyrir sýningar sem falla niður. Helvítis rokið hér á Íslandi.  Jæja svona er þetta bara.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband